fucking kangaroos!!!

But... im a cheerleader

08.07.2008 02:23:28 / bambi

blogg 08/07/08

kanski komin tími á öppdeit á þessa síðu.

öppdeit ípunktum

ég átti afmæli um daginn

ég þakka öllum fyrir sem mundu eftir því

                    þið hin sem gleymduð því þá hef ég afneitað ykkur

krummi áttí líka afmæli 30/06

þar sem hann er ekki komin á þann aldur að heimta gemsa þá er það alltílæ að hann fékk ekki til hamingju með afmælið sms frá ykkur

stökkull átti líka afmæli en það var í maí

við rakel erum slæmir foreldrar og gleymdum afmælinu

hann veit ekki einu sinni hvað afmæli er svo honum er allveg sama

amma átti afmæli um dagin líka þann 27/06

ég hringdi :)

hemmi frændi átti líka afmæli þann 30/06

ég hringdi ekki

fannar átti líka afmæli

það var öllum sama

jább þá held ég bara að það sé komið afmælisdálkurinn

júní er vinsæll mánuður, ég held að amma hafi startað enhverju trendi. amma fæddist í júní og hemmi vildi vera jafn kúl og amma og fæddist í júní og fannar vildi vera jafn kúl og hemmi og fæddist í júní og ég vildi vera jafn kúl og hemmi (fannar er ekki kúl) og fæddist í sama dag og hemmi, og stökkull vildi vera jafn kúl og ég en miskildi eitthvað og fæddist í maí og krummi vildi vera jafn kúl og ég og fæddist á 18 ára afmælisdaginn minn

jáááá svo fórum við rakel í biffen áðan á nýju will smith myndina

hún er fín.

jæja ég ætla fara að sofa


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 16:34:27 / bambi

sea of luuuuuuve

góðan dagin allir saman

héðan er bara allt gott og frekar einmannalegt að frétta, rakel yfirgaf mig í morgun og fer til lands mcdonalds og coca cola, ég vil póstkort, þannig ég og óskar erum bara ein, fyrir utan sætu strákana mína, ef það er hægt að kalla þá stráka það sem við erum búin að gelda þá, allavena þá beit stökkull í stóra vatnsblöðru, ég helf aldrei séð hann jafn hissa hann var bara8|8|8|. allavena þá tók ég eftir því um dagin að hann var bólgin á annari kinninni ég held að hann og krummi hafa verið að slást og krummi hafi bitið hann, en þetta fór sem betur fer um nótinna svo við þurftum ekki að fara með hann til dýralæknis   
 stökkull það sést að hann er bolgin vinsta meigin og svo krummi  og   kría hin brjálaða


já svo er barasta búið að vera það fína fína veður og ég hef bara verið að hjálpa mömmu hans Fannars í garðinum því hún má ekki gera það útaf sárum sem hún er með á fótunum og það má nátturulega ekki fara mold í þau, og hún var vonandi í síðustu aðgerðinni í gær útaf þessum sárum. svo ég var í gær með halla (litla bróður Fannars) og Birgittu sem er þríburasystir Fannars, og við fórum á glerártorg meðan þau voru á spítalanum.

svo verðum við áfram í vestursíðunni í sumar sem er frábært, ég nenni ekki að flytja, mér finnst það svoooo leiðinlegt, ég og fannar förum í stóraherbergið vííííí, og svo kemur stelpa sem ætlar að vera 3 leigandinn.

jæja ég er farin ætla að ná 40 rútinunni downtown

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 09:16:22 / bambi

mitt framtak í blogginu að sinni... brandari :D

Maður hringir í fyrirtæki og pantar hjá þeim "misstu 5 kg á 5 dögum" pakkann. 

Daginn eftir er barið á dyrnar hjá honum og fyrir utan stendur íturvaxin 19 ára snót í engu nema Nike hlaupaskóm.  Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig". 

Hann lætur ekki segja sér það tvisvar og stekkur á eftir henni.  Eftir nokkra kílómetra er hann orðinn móður og másandi og gefst upp.  Sama stúlkan mætir á þröskuldinn hjá honum næstu 4 dagana og það sama gerist í hvert skipti.  Á fimmta degi vigtar félaginn sig, og viti menn, hann hefur misst 5 kg.


Hæstánægður með árangurinn hringir maðurinn aftur í fyrirtækið og pantar hjá þeim
"misstu 10kg á 5 dögum" pakkann. 

Næsta dag er bankað á dyrnar og fyrir utan stendur einhver sú fallegasta og kynþokkafyllsta kona sem hann hefur á ævinni séð.  Hún er eingöngu klædd í Reebok hlaupaskó.  Um hálsinn á henni hangir skilti sem á stendur "Ef þú nærð mér, þá máttu eiga mig". 

Eins og elding tekur hann á rás á eftir skvísunni.  Hún er auðvitað í fantaformi og þó hann reyni sitt besta nær hann henni ekki.  Næstu fjóra daga heldur þessi rútína áfram og hann kemst smám saman í betra form.  Á fimmta degi vigtar hann sig og sér til ómældrar gleði hefur hann misst 10 kg. 


Hann ákveður að leggja allt í sölurnar og hringir og pantar "misstu 25 kg á 7 dögum" pakkann.  "Ertu alveg viss?"spyr sölumaðurinn " Þetta er erfiðasta prógrammið okkar"

"Ekki spurning" svarar félaginn, "mér hefur ekki liðið svona vel í mörg ár".


Daginn eftir er barið á dyrnar, og þegar hann opnar stendur risastór, helmassaður karlmaður fyrir utan í engu nema bleikum hlaupaskóm. 
Um hálsinn á honum hangir skilti sem á stendur "Ef ég næ þér, er rassinn á þér MINN!"   


Félaginn missti 32 kg í þeirri viku.


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 11:57:24 / bíbí

SVENGD!

ég æltaði að vera geðveikt dugleg og blogga hérna pínu pistil um það hversu ÆÐISLEGUR seinasti dagur fyrir páska var... en NEEEIII þurfti ég ekki að rekast á eitthvað FOKKING PIRR á þessari FOKKING BLOG CENTRAL síðu:evil::evil::evil:!!! VIÐ ÞURFUM AÐ FOKKING BREITA NAFNINU OKKAR AF ÞVÍ AÐ ÞAÐ ER EKKI LENGUR FOKKING STUTT AF BLOG CENTRAL! hvað er eiginlega fokking málið!?! í alvöru talað! SKIPTIR ÞAР EINHVERJU FOKKING MÁLI FYRIR ÞAU HVAÐ VIÐ FOKKING HEITUM!!!???!!! ÞETTA VAR Í LAGI ÞEGAR ÞAU VORU MEÐ FOKKING GÖMLU SÍÐUNA! AFHVERJU Í AMNDSKOTANU ÞURFTU ÞEIR AÐ FARA OG BREYTA SÍÐUNNI?!?

vildi bara böggast pínu:P... en núna er komið að yndislega skóladeginum:P... fyrst byrjaði dagurinn á því að ég átti að vera í fjórföldum tíma í FSH (framsetning og hönnun) en kennarinn kom ekki... við prufuðum að hringja í gemsan hans, tvisvar, og svo í heima síman hans, en hann svaraði ekki... við ákváðum þá bara að fara og koma aftur í seinni tvem tímunum... við fórum og komum aftur... hann var ekki ennþá kominn og ekki heldur búinn að hringja til baka... sem þýddi að við vorum komin með FJÓRFALDA eyðu:haha:... hversu sweet er það?:P en þegar sú eyða var búin þá fór ég í ensku... þar var próf úr hamlet sem var svo FOKK létt að ég kláraði það á no time:)... þá var bara hádegismatur og svo jóga:)... hún sagði að þar sem þetta væri seinasti tíminn fyrir páska þá æltlaði hún ekki að hafa neinar æfingar heldur bara tala við okkur um jóga8)... þannig að við fengum að vera í hvaða stöðu sem við vildum og hlusta:haha:... auðvitað laggðist maður niður og dottaði pínu:P...
þetta var allur dagurinn:d sweet ekki satt:d:d:d?

until next time
steini $


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 16:08:15 / bambi

pirr pirr pirrípú

nú skal ég sko seiga ykkur! þetta er búin að vera MEIRI HÁTTAR PIRRANDI VIKA!
núna bara áðan var ég úti bæ og var að bíða eftir rútunni heim og ég stóð þarna á gangséttinni bara skoða mp3 spilaran, EKKI AÐ PIRRA NEINN!!!!!!!!!! og það voru svoooona 3 mín í rútuna. nei nei kemur ekki þessi ljóti ljóti jepplingur og keyrir óþarlega nálægt gagnséttinni og svettir ógeðslegu slabbi yfir mig og hitt fólkið!!!!!!!! HA!!!! svo heiri ég að ein konan þekkir þennan mann aðeins og heirðu er hann ekki bara blindur á auganu sem var nær okkur!!!!!!!!!!!! BLINDUR!!!!!!!!!!!!!!!!! Á AUGA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
þá var mér sko nóg boðið!!!!!!!!!!!!
þannig núna sit ég bara heima með fyrverandi strákunum, núna eigum við Rakela bara tvo það kétti. núna verða allar kisustelpurnar í nágreninu leiðar, enda bráðmyndaleigir fyrrverandi kisustrákar sem við eigum.
undafarin kvöld er ég búin að vera spila þennan leik á leikjanet.is sem maður á að finna samstæðakubba og klára alla kubbana, mjög skemmtileigur leikur og enþá meira ávanabindandi. allavena þá eru merkin kínversk á kubbonum og ég hef þaraðleiðandi eytt miklum tíma að glápa á þessi merki. Flensa í kína er mitt álit á þessari skrift þeirra, ég held að nú hafi einn bara sest niður og sagt jæja Yang nú ætlum við að búa til skrift fyrir þessa þjóð, svo tók hann upp blekpennan og ATSJÚ blekið skvettist á pappírinn og út kom merki. og þeir voru bara hei þetta er auðvelt. og út kom þetta skvett sem þeir kalla skrift. með fullri virðingu auðvitað fyrir kína og þeirra sögu.

afhverju er ekki svona ghettó á íslandi? ég hef heyrt nokkra seiga að keflavík er ghettó. Nei kaflavík er EKKI ghettó. keflavík er fullt af fólki sem er með sérvisku, þau vija ekki búa á rvk svæðinu því það er of hávært og engin friður... svo þau ákveða að´búa frekar hjá risa strórum útandlands flugvelli. ég meina, það erum bara að minsta kosti 4 flugvélar á klst.

svo er blessaða eurovision bara á næsta leiti, held ég, veit ekkert um það og er allveg sama. veit samt að við klikkum ekkert á að senda ömurlegt lag. í fyrra sendum við enhvern eldri borgara, sem sló í gegn hjá öllum einhleipum konum yfir fertugt. og núna sendum við enhvern homma og kellingu sem hefur ekki gert neitt í mörg ár nema að birtast þar sem homminn er að syngja.  persónulega fannst mér að það hefði átt að senda Haffa Haff, hann var með betra lag og er enþá hommalegri og með besta lagið í keppninni. mér fannst gillsenger og co GLÖTUÐ!!!! 
 
jæja ég ætla að fara stinga slabb blautu fötin mín í þvott
eigiði nú góða helgi

 



» 0 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 11:39:57 / bambi

veik, veikari, veikust, dáin

listi yfir allt sem er að hjá Lovísu


1    VEIK
2    VEIK
3    VEEEIK
4    KANN EKKI Á NÝJA BLOG.CENTRAL
5    EIN Í HEIMINUM
6    DRASLIÐ SEM Á AÐ FARA Í AUGUN AÐ VERÐA BÚIÐ
7    ÞARF AÐ FARA AFTUR TIL LÆKNIS
8    svo bara þetta venjulega væl, stríð, hugursneið og allt það
9    svo má ekki gleyma VEIK

 veikin mín inniheldur eftirfarandi : gömlu góðu hálsbólguna, klassískt kvef, augnsýkingu sem var að koma aftur í morgun og ælupest sem ákvað að láta í sér heyra enda langt síðan hún hefur komið í mitt sistem. get ekki sagt að þetta voru skemmtileigir endurfundir hjá okkur. allavena að minni hálfu.

svo átti Rakela afmæli í gær, 19 urðu árin og ég kom með flottustu og svölustu og bestustu gjöfina, svona walky talky. Rakel bakaði kökur og það komu gestir og gaman gaman gaman, og nú eru baraaaa 4 mánuðir og 2 dagar í afmælið mitt:haha: svo varð enhver fjöldagisting í gær hérna hjá okkur, listi: ég, Rakel og Óskar auðvitað svo auka fólk var Sísí, Fannar, Sjöfn og Solla, þannig þegar ég fór framm í morgun í extra vondu skapi yfir að sýkingin væri komin aftur og nánast grenjandi og ég hljómaði eins og fermingastrákur í mútum útaf hálsbólgunni, þá tekur á móti manni einhver army af trúðum allir gegt happy happy joy joy. ég hataði það.

ég ætla að fara heingja upp hreinu hreinu fötin mín og setja ógeðslegu ógeðslegu náttfötin mín í þvott

ps. egyptaland var ágætt... bara ágætt.
pps. ég vil þakka öllum þeim sem hjálpuðu Fannari og vottuðu honum samúð sína og svona. takk


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 18:04:13 / bíbí

sigh...

ég gegt sit hénna á D'n'D fundi og blogga þar sem allir eru að hogga bækurnar og ég get ekki gert neitt án bókanna þar sem við erum að gera nýja karaktera fyrir epic levelið sem við erum að byrja á:P... i'm such a nerd:lol:... svo er ég líka hálf lasin þannig að einbeitingin mín er ekki mjög góð og ég verð fljótt pyrruð þegar ég er slöpp... sérstaklega þegar fólkið í kringum mig er hávært like these people8|... the only thing i wanna do now is crawl up in my bed and cuddle:^)

núna eru allir að fara... athiglisbrestur hjá sollu og hungur hjá restinni:P... mig langar heim að kúúúraaa!!!

ekki segja svo að ég bloggi aldrei
until next time
steini $


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 03:28:29 / bambi

með skóblu!!!

ég get ekki sofið. ég er samt þreytt. ég er að pæla að fara að sofa þegar ég er búin að skrifa hér litið

ég fékk (næstum) hráan hamborgara á búllunni í dag... ég var ekkert sátt, nennti samt ekki að kvarta.

ég ætla að skrif-syngja fyrir ykkur

þið þurfið að ýminda ykkur mína dúnmjúku fölsku rödd, og gera þetta svona 7 sinnum verra svo just in case ég skildi ákveða að syngja þetta fyrir ykkur þá er þetta betra en þið hefðuð ýmndað ykkur:haha:

I was walking down the road, staring in the sky. looking at all the pople

já svo brestur á bráðum að ég er baara farin bara.

fer til rvk 7 feb til Ínu:haha::haha::haha:vívívívívívívívívívívívívíví:haha::haha::haha:

svo 8 feb til dk til mömmu superdúber gömlu... enda orðin fertug:$ neeiii hún er ekkert það svakalega ótrúlega gegt gömul:lol:  hún myndi bara afneita mér ef ég sagði þetta.... og hvað þá leifa mér að koma með þeim til egpl. (egpl er mín skamstöfum á egyptaland)  og þá yrði mín ferðasaga stutt skal ég seiga þér... hún yrði enhverneigin sonna... Lovísa ætlaði til egyptlands en móðgaði mömmu sína á netinu með því að seiga að hún hafi verið eitt af fáum spendýrum sem lifðu af þegar lofsteinnin sem drap allar risaeðlurnar lentu á jörðinni, þannig að það næsta sem Lovísa komst egptl var subway því þá nennti hún ekki að labba lengra og tók rútuna heim:^)

 ég sé að á öllum dúskunum á þessum að við munum verða góðir vinir

ég og nýji vinur minn munum :

 horfa á útsýnið saman

 fara á stöndina saman (eða bara gefast upp enhverstaðar í eyðimörkinni) SAMAN

ætla að fara sofa L


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 02:14:20 / bambi

teenagers!!!

:whut:GELÐILEGT NÝTT ÁR!

Voooooooooðalega lítið að frétta frá akureyrinni, bara kalt og snjór. litil fuglinn minn hann krummi kallinn og stökkull hafa endalausan áhuga á þessum blessaða snjó, og þeir eru algjörlega einir um þennan áhuga.

við Rakel erum ornar nip/tuck fan numer 1:haha::haha:

HVAR ER SÍSÍ PA????! hún er barasta horfin kæru landsmenn... allavena er hún ekkert að láta vita af sér:evil::evil::evil:

Edda kom um helgina:haha: hún bauð mér í bíó á National Treasure: Book of Secrets ooog út að borða ooog á skauta sem við vorum allar í því að detta... mér fannst ekkert gaman að það eru 3 ára krakkar sem voru betri en við:^) svo ekki bætti úr skák þegar listskauta æfingin byrjaði:^):^) og allar 10 ára stelpurnar byrjuðu að hoppa og snúa sér í hirngi í loftinu  þá leið mér eins og mörgjæs að labba niður laugaveigin, ég var allavena jafn klaufaleg:frown: svo ég kom út úr skautahöllini með veeeel bólgið hné:)allavena ég elska eddu:haha:

jááá svo eru bara mánuður í að ég fari til egyptalands, ætla kaupa sand handa rakel:haha: og fleirum og svo náttlega sendi ég útvöldnum manneksjum póstkort;) VERIÐ GÓÐ VIÐ LOVÍSU ÞVÍ ANNAS FÁIÐI SKO EKKERT PÓSTKORT!!!:evil:

svo skora ég á rakel að koma með feitt og gott blogg hérna í vikunni:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 00:03:34 / bambi

.....................................................................................

jólaskap = -10%

pirringur = 48%

þreytt = 31%

íllt = 21%

__________________________________________________________________________________________

desember er búin að vera nokkuð.... öðruvísi mánuður en venjulega. fólk deyr, þótt jólin eru að koma, þótt maður sé búin að kaupa jólagjafir handa þeim. og þarna hefur maður eina jólagjöf meira en maður ætlaði í upphafi.

í upphafi var ekkert, guð sagði verði ljós og það varð ljós.

ég er bara pirruð, leiðist og íllt og svo pirruð yfir að mér leiðist og sé íllt.
mér langar ekki framm úr. ég nenni heldur ekki að opna hurðina fyrir köttunum þótt mig langi, nema strákarnir sé með vatnsglasið sem ég bað þá um að koma með.... semt þetta eru kéttir, þeir eru ekki  með þumla, svo þeir hafa valla náð að opna skápin ná glasinu niður opna kranan og setja glasið undir svo koma glasinu niður og með það til mín... án þess að það brotni eða hellist niður og sérstaklega án þess að ég heyri þetta allt,

lífið er erfitt. líka stærðfræði.

en mér finnst lífið skemmtilegra en stærðfræði. miklu skemmtilegra.

mér langar í kók. een ég nenni ekki útí búð þannig ég ætla að fá mér mjólk í staðin, svo er hún líka hollari. hver man ekki eftir dretli sem saung mjólk er góð lagið og hoppaði útum allt eins og hann væri á enhverju. en sætt...

ég held að þetta sé bara ágætt blogg hérna, sem fjallar um lífið og tilveruna.

trubluð tilvera

gleðilegt nýtt ár krakkar mínir!

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 15:26:16 / bambi

jólablogg án titils

hæ sæta sæta fólk

 

gleðileg jól

og til hamingju með nýja árið

og við sjáumst örugglega hress og kát... soon

verí sún


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 21:58:41 / bíbí

Saman á ný; ástarævintýrið heldur áfram

Ég er búin að velta því fyrir mér í svolítinn tíma núna hvort að ég ætti að setja eitthvað hérna inn um hann elskulegan afa minn.  Ég ákvað á lokum að verða að því.  Ég veit ekki hvað ég get sagt nem það að hann var besti afi sem hugsast gæti.  Hann varð næstum aldrei reiður, ekki við mig að minnst kosti, nema í eitt skipti og þá varð ég sko hrædd.  Þá hafði ég og besta vinkona mín á þeim tíma verið að kasta skítugum snjóboltum í húsið, en afa leist nú ekki á það og skammaði mig vel og vandlega fyrir vikið:).
Ég vil nú samt ekki gera þetta of væmið hérna og ætla ekki að fara að rifja allt upp því þá yrði þetta margra kílómetra blogg:haha:.  Mig langar bara að benda á síðustu bloggfærsluna hans Loga afþví að mér finnst hún æðisleg, slóðin er http://logilitli.blogspot.com/ og heitir færslan ,,Hinsta ferðalag pabba".
Núna veit ég þó að afi er búinn að fá frið og er kominn aftur til hennar Sillíar sinnar (ömmu:)) og ástarævintýrið getur haldið áfram:)
Far vel elskulegur afi og skilaðu nú kveðju til hennar ömmu, hafið það nú gott

XOXOXO
Rakel Snorradóttir


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 16:06:23 / bambi

endirinn

í gær var mér tilkinnt um að minn ástkæri hundur væri dáinn.

Pax og Dublo

Dublo var með gigt í öðrum fætnum og var komin á það stig að hann gat ekki hreyft sig, og lá bara allan daginn fram á gangi og mamma þurfti að færi mataskálina til hans því að hann gat ekki labbað til hennar. Dublo elskaði að gelta á póstmanninn og að fara í göngutúra upp að vatninu sem yfirleitt endaði með því að ég kastaði spýtum í vatnið og hann synti og náði í það. Hann var ávallt glaður og elskaði alla, hann var alltaf svo spenntur ef það komu gestir, hann var voðalega barngóður og var allveg sama ef krakkarnir væru eitthvað að hnoðast á honum. Dublo skildi fáein orð eins og feitur og koddu ég er með mat handa þér, enda var hann soldið feitur hundur því hann vissi hvar matadallur nágrannahundsinns var. Ég efast um að það eigi enhver slæmar minningar um hann, því þessi hundur er ekkert nema sólargeisilinn og ástinn uppmáluð.

allir kransar og kort afþökkuð. þeir sem vilja minnast Dublo er bent á gigtarfélag hunda.

Takk fyrir 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 00:35:31 / bambi

óformlegur titill

ÉG ER AÐ FARA TIL EGYPTALANDS 15 FEB !!!!!!!!!!!!!!

ÖFUNDIÐ MIG!!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 20:48:19 / bíbí

STUPID PEOPLE!!!

ég ætla að varpa hérna fram spurningu sem allir ættu að íhuga aðeins... hvað er svona f***ing erfitt við að gefa f***ing stefnuljós:evil:... þið vitið að þetta gefur til kynna hvert þið æltið að fara þannig að það verður ekki klesst á ykkur! *gasp* óóóhhh er það tilgangurinn með þessu ljósi, gætu sumir sagt, ég hélt að þetta væri bara sonna skraut á bílinn sem ég mætti ráða hvort að ég notaði eða ekki8|... THINK AGAIN!!! kannski halda sumir að þetta séu persónunjósnir, oh my god, fólk gæti vitað hvert ég er að fara8| eru þá bremsuljósin ekki líka persónunjósnir?!? fólk gæti vitað ef að þið eruð að fara að hægja á ykkur8| það kemur þeim bara ekkert við!8| eða þá bílljósin sjálf! eru þau ekki líka bara persónunjósnir?!? aðrir gætu vitað að þið væruð á ferðini8| THINK AGAIN STUPID PEOPLE!!! THIS IS FOR YOUR OWN, AND NOT TO MENTION, OTHER PEOPLE'S SAFETY!!! MÉR FINNST ÞAÐ BARA ÓGEÐSLEGA TILLITLAUST AF FÓLKI AÐ GEFA EKKI STEFNULJÓS!!! OG AUK ÞESS MJÖG SVO HÁLFVITALEGT!!! það er ekki það erfitt að ýta þessari litlu stöng upp eða niður, maður þarf varla að hugsa um það!!!8| ÞESSI LJÓS VORU EKKI SETT ÞARNA AÐ TILGANGSLAUSU!!!

ok, that completes my rant for today
until next time
steini $


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Klukkan